Frumtök á twitter

Neyðarástand vegna sýklalyfjaónæmis

Sýklalyfjaónæmi er sífellt stærra vandamál vegna svokallaðra ofurbaktería, og hefur nú náð alvarlegu stigi samkvæmt nýjustu fréttum. Vakin var sérstök athygli á þessu máli á Alþjóðlega heilbrigðisdeginum nú fyrir stuttu og í þessari frétt á vef BBC segir að sérfræðingar innan evrópska heilbrigðiskerfisins hafi gefið út viðvörun vegna þess að ónæmi bakteríanna sé nú orðið meira en nokkru sinni fyrr, og að þróun nýrra lyfja sé ekki nógu hröð. Yfirvöld eru farin að gera sér sífellt betri grein fyrir þessum vanda, en enginn virðist tilbúinn til þess að borga fyrir rannsóknir og þróun á þessu sviði.

Á ári hverju látast um 25 þúsund manns í Evrópu af völdum bakteríusýkinga sem jafnvel nýjustu sýklalyf vinna ekki á. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin, WHO, segir ástandið hafa náð alvarlegu stigi. Sameiginlegt átak í þróun á nýjum lyfjum sé nauðsynlegt. Án samstillts átaks gæti komið upp sú ógnvænlega staða að ólæknanlegar sýkingar breiðist hratt út á heimsvísu.

Nýjasta dæmið um svokallaða ofurbakteríu er erfðavísir kenndur við Nýju-Delí, NMD-1, sem fannst nýlega í breskum sjúklingum. Hún barst þangað með sjúklingum frá Indlandi og Pakistan. New Delhi metallo-ß-lactamase-1, eða NDM-1, er erfðavísir sem berst með bakteríum og gerir þær ónæmar fyrir carbapenem sýklalyfjum. Það er áhyggjuefni vegna þess að slík sýklalyf eru mjög öflug og eru notuð til að vinna á erfiðum sýkingum sem bregðast ekki við öðrum lyfjum.

Vísindamennirnir við Háskólann í Cardiff, sem uppgötvuðu bakteríuna í ágúst síðastliðnum, segja samskonar erfðavísi hafa borist í drykkjarvatn í Nýju-Delí og þar með geti milljónir manna verið berar.

Vísindamennirnir söfnuðu 171 sýni úr frárennslisvatni og 50 sýnum af kranavatni borgarinnar á tímabilinu september til október á síðasta ári. NDM-1 fannst í tveimur kranavatnssýnanna og 51 frárennslissýnanna. Það sem vakti mestar áhyggjur var að erfðavísirinn fannst í bakteríum sem orsaka blóðkreppusótt og kóleru, sem smitast auðveldlega milli manna með menguðu drykkjarvatni.

„Þetta er alvarlegt vandamál í landi eins og Indlandi þar sem 650 milljónir íbúa hafa ekki aðgang að vatnssalerni og hafa mjög líklega heldur ekki aðgang að hreinu vatni,“ segja vísindamennirnir í grein í tímaritinu Lancet Infectious Diseases.
Því kalla þeir eftir aðgerðum heilbrigðisyfirvalda á heimsvísu til að stöðva útbreiðslu þessara nýju afbrigða og koma í veg fyrir að þau breiðist út um heiminn allan.
Zsuzsanna Jakab, svæðisstjóri WHO í Evrópu, segir sýklalyf dýrmæta uppgötvun sem hafi verið ofnotuð og misnotuð: nú finnist ofurbakteríur sem bregðist ekki við neinum lyfjum.
„Miðað við umfang ferðalaga og viðskipta þvers og kruss um Evrópu og hnöttinn allan, er ekkert land óhult fyrr en öll lönd hafa tekið höndum saman um að taka á vandamálinu,“ segir Jakab.
<<Til baka Bookmark and Share

Lyf eru nauðsynleg

Það eru forréttindi að geta læknað og líknað. Án þróunar frumlyfja staðnar framþróun heilbrigðismála. Lyf eru nauðsyn í nútíma samfélagi og einn mikilvægasti stólpi heilbrigðiskerfisins.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.