Frumtök á twitter

Ný rannsókn gefur nýja von í baráttunni gegn malaríu

Ný rannsókn lyfjaframleiðandans GlaxoSmithKline(GSK) sem birt var í tímaritinu Nature gefur vísbendingar um nýjar leiðir til þróunar lyfja gegn malaríu. Rannsóknin fólst í skimun á yfir tveimur milljónum efnasambanda. Hún stóð yfir í eitt ár á rannsóknarstofu GSK og voru greind 13.500 efnasambönd sem gætu haft hamlandi áhrif á malaríusníkilinn, P. falciparum.

Stærstur hluti þeirra voru svokallaðir kínasahemlar en það eru efnasambönd (kinase inhibitors), sem virka hemlandi (inhibit) á viss ensím og hefur gagnsemi þeirra í meðferð ýmissa sjúkdóma mikið verið rannsökuð.Segja stjórnendur rannsóknarinnar að þessi virkni hafi komið á óvart og frekari rannsóknir á þessum efnasamböndum gætu gagnast í baráttunni gegn malaríu.

Rannsóknin benti einnig til þess að sum efnasambönd virki hamlandi á virkni í rauðum blóðkornum sem er nauðsynleg til að sníkillinn haldi lífi. Það opnar fyrir áður óreyndan möguleika að berjast gegn sýkingu með því að koma í veg fyrir þessa virkni í rauðum blóðkornum, frekar en að berjast gegn sníklinum sjálfum.

GSK hefur beint athygli sinni að því að efla rannsóknir á sviði svokallaðra vanræktra hitabeltissjúkdóma sem herja á þróunarlöndin. Liður í því er að gera rannsóknirnar aðgengilegar fyrir aðra og er það í fyrsta skipti sem lyfjafyrirtæki gerir upplýsingar um svo mörg efnasambönd aðgengileg.

Rúmlega 80% þeirra eru eign GSK og því nýmeti fyrir rannsóknasamfélagið í heild. Öll gögnin eru aðgengileg á Netinu í gegnum European Bioinformatics Institute (EMBL-EBI) og Collaborative Drug Discovery. Þessi gögn, ásamt greininni í Nature, gefa vísindamönnum þúsundir nýrra möguleika á að hefja þróun á lyfjum gegn þessum sjúkdómi sem fellir barn í Afríku á 30 sekúndna fresti.

„Heimurinn þarf nauðsynlega á nýjum lyfjum gegn malaríu að halda,“ segir Dr Patrick Vallance, yfirmaður lyfjarannsókna hjá GSK. „Þessi gögn gefa okkur og vísindamönnum um allan heim aðgang að nýjum vísbendingum til að fylgja. Við vonum að þessar upplýsingar verði til þess að rannsóknir á sjúkdómnum eflist og við hvetjum vísindamenn til að tilkynna niðurstöður sínar til EBI til að skapa alþjóðlegt samstarf sem eflir sameiginlega þekkingu og þróun á nýjum lyfjum.“ 

 

http://www.ebi.ac.uk/

http://www.nature.com/nature/current_issue.html


<<Til baka Bookmark and Share

Lyf eru nauðsynleg

Það eru forréttindi að geta læknað og líknað. Án þróunar frumlyfja staðnar framþróun heilbrigðismála. Lyf eru nauðsyn í nútíma samfélagi og einn mikilvægasti stólpi heilbrigðiskerfisins.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.