Frumtök á twitter

Nýr formaður í Danmörku

Systursamtök Frumtaka, LIF í Danmörku, héldu nýverið aðalfund sinn fyrir árið í ár og kusu sér þar nýjan formann, Dorthe Mikkelsen. Dorthe hefur starfað innan lyfjaiðnaðarins í um tvo áratugi, hún er aðstoðarforstjóri MSD í Evrópu og svæðisstjóri MSD í Skandinavíu.
 
Á heimasíðu LIF er áhugavert viðtal við Dorthe, þar sem hún fer yfir áherslur sínar sem formanns, ábyrgð lyfjaframleiðenda í samfélaginu og hve vel hefur tekist til með samstarf og samvinnu lyfjaframleiðenda og stjórnvalda í Danmörku.
<<Til baka Bookmark and Share

Hvaða máli skipta lyf?

Rétt lyf eru jafn mikilvæg og rétt sjúkdómsgreining. Lyf geta gert fólki að yfirstíga sjúkdóma sem annars væru óyfirstíganlegir.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.