
Baráttan gegn ólöglegum lyfjum harðnar sífellt og nú er svo komið að
Samtök lyfjaframleiðenda í Evrópu (EFPIA) hafa skorið upp herör gegn
holskeflu ólöglegra lyfja í Evrópu þar sem fölsuð lyf flæða nú yfir
álfuna sem aldrei fyrr.
Á vefsíðu CORDIS (upplýsingaveit Evrópusambandsins um stuðning við
rannsóknir og þróun) má lesa að tollayfirvöld í Evrópu geri upptæk
sífellt meira af ólöglegum lyfjum með hverju árinu sem líði.
Vegna þessa tóku evrópskir sérfræðingar sig saman til að finna lausn á
þessum gríðarlega vanda. Þeir þróuðu verkfæri sem gagnast neytendum,
dreifingaraðilum, stjórnvöldum og smásölum við að þekkja muninn á ekta
vöru og eftirlíkingum. SToP (Stop Tampering of Products) verkefnið
svokallaða hlaut nýverið 440 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu.
Neytendur eru yfirleitt meðvitaðir um að alþjóðleg viðskipti með falsaða vöru eiga sér stað, til að mynda með fölsuð úr eða merkjahandtöskur sem eru of ódýrar til að geta verið ekta.
Falsanir eru líka að verða sífellt stærra vandamál í öðrum vöruflokkum og á það til að mynda við um leikföng, sígarettur, snyrtivörur, raftæki og jafnvel varahluti í flugvélar svo eitthvað sé nefnt.
Fölsuð lyf verða sífellt vinsælli á Evrópska markaðssvæðinu; eftirspurn eftir fölsuðum Viagra töflum fer sívaxandi, eins og eftir blóðfitulækkandi lyfjum, beinþynningarlyfjum og blóðþrýstingslyfjum. Vandamálið kemur því ekki aðeins niður á orðspori og tekjum fyrirtækja, heldur getur haft alvarlegar afleiðingar á heilsu fólks og öryggi.
SToP verkefnið leiddi saman hesta nokkurra fyrirtækja sem orðið höfðu fyrir barðinu á fölsurum, til að mynda flugvélaframleiðandann Airbus, lyfjaframleiðandann Novartis, auk framleiðenda lúxusvöru og hugbúnaðar.
Þeir sem að verkefninu standa vilja að tekið verði á vandanum áður en hann breiðist út, með góðum forvörnum, í stað þess að reiða sig eingöngu á refsingar til að fæla væntanlega brotamenn frá því að versla með falsaða vöru.
„Aðalhlutverk öryggisdeilda flestra fyrirtækjanna hefur hingað til verið að vinna með lögreglu og yfirvöldum við að loka vefsíðum og verslunum sem selja falsaða vöru, en það tekur aðeins á litlum hluta vandans“ segir verkefnisstjóri SToP, Dr Harald Vogt, frá þýska hugbúnaðarfyrirtækinu SAP.
„Það sem við höfum gert er að blanda saman tækni og skipulagi á áhrifaríkan hátt og búið til heildarkerfi sem fyrirtæki geta nýtt sér án mikillar þjálfunar eða aukakostnaðar,“ segir Vogt.
Það fyrsta sem aðstandendur StoP gerðu var að gera yfirgripsmikla greiningu á framboði og eftirspurn eftir ólöglegri vöru og fylgja ímyndaðri vöru eftir frá framleiðslustigi til afhendingar.
Út frá því ferli var hannaður búnaður sem samanstendur af auðkennum fyrir vöruna, lesurum sem lesa upplýsingar af auðkennunum og hugbúnaði til að geta nýtt sér tæknina. Þannig má merkja vöru með sérstöku auðkenni sem er síðan skannað til að ganga úr skugga um að varan sé ekta. Þessi verkfæri tryggja örugga framleiðslu, dreifingu og sölu á vörunni.
Frekari upplýsingar um verkefnið má finna hér:
STOP
ICT Results