
Í nýrri rannsókn
EFPIA,
EuropaBio,
Medicines Australia og
PhRMA sem birt var 13. júlí kemur fram að þörf sé á því að bæta aðgengi sjúklinga að nýrri tækni og nýjum lyfjum.
Skýrslan tók sérstaklega fyrir þætti greiningar í heilbrigðistækni og bar saman við bestu starfshætti. Eitt meginhlutverka heilbrigðistæknigreiningar er að tryggja gott aðgengi fólks að nýjustu lyfjum og meðferðarúrræðum. Rannsóknin sýnir hinsvegar fram á að núverandi vinnuaðferðir geri lítið til að flýta fyrir aðgengi fólks að nýjum lyfjum og meðferðarúrræðum. Nýjar meðferðir geta á tíðum valdið algjörri byltingu í meðferð sjúkdóma eins og sést á umfjöllun um gigtarlyf fyrir skömmu sem sjá má
hér.
Samkvæmt rannsókninni eru ástæðurnar fyrir skertu aðgengi þó margar og mismunandi. Þannig getur til dæmis verðstefna heilbrigðisyfirvalda komið í veg fyrir að sjúklingar komist í tæri við nýjustu lyfin.
Í umhverfi endalausrar hagræðingar er ljóst að hægt er að ná betri árangri með tiltæku fjármagni með því að nýta möguleika heilbrigðistækninnar til fulls. Til dæmis með því að tryggja aðgengi að nýjum lyfjum sem geta orðið til þess að draga úr kostnaði samfélagsins af sjúkdómum.
Heilbrigðiskerfi sem tryggir fullt aðgengi sjúklinga að lyfjum og nýjustu heilbrigðistækni er kerfi sem sannarlega hefur þarfir sjúklinga og samfélagsins í huga. Það vill á tíðum gleymast að það getur verið skammgóður vermir að draga úr útgjöldum til heilbrigðismála, ef það kemur niður á þjónustu við sjúklinga og samfélagið.