
Það er stutt síðan hinn þekkti fyrirlesari
Michael Porter hélt
fyrirlestur hér á landi á vegum
Frumtaka og
Arion banka í samstarfi við
Gekon um endurskipulagninu nútímaheilbrigðiskerfis. Porter kemur hinsvegar að fleiri málum enda áhrifamikill á sviði stefnumótandi ráðgjafar.
Rob Smith hjá lyfjafyrirtækinu
Lilly bloggaði um síðustu mánaðamót um þróun samfélagslegrar ábyrgðar þar sem hann sagði réttilega að fátækt, hungursneið og ójafn aðgangur að menntun og heilbrigðisþjónustu væri daglegt brauð í heiminum hefði gríðarleg áhrif, bein og óbein á fólk um allan heim.
Smith nefnir það að viðskiptaheimurinn geti, og eigi, að leika stærra hlutverk í því að taka á flóknum vandamálum sem þessum og því verði fyrirtæki ef þau vilji láta gott af sér leiða að hugsa vel og rækilega um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja.
Samfélagsleg ábyrgð hins nútíma fyrirtækis stefnir á nýjar brautir að sögn Smith. Þar sem áður var stólað á fjárstuðning eða einstök verkefni er nú þörf á nýju viðskiptamódeli sem geri fyrirtækjum kleift að greina vandann, taka á honum og ná árangri til lengri tíma.
„Ný nálgun á samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja krefst þess að fyrirtæki greini þau svið þar sem þau hafa hvað mest áhrif og mesta sérþekkingu. Með því að einbeita sér svo að ákveðnum málefnum, í samvinnu við aðra og með því að þróa og innleiða stefnumótandi viðbrögð, geta fyrirtæki hjálpað þjóðfélaginu í heild sinni“ segir Smith.
Það er þessi hugmynd um sameiginlega hagsmuni sem er kjarni stefnu fyrirtækja á sviði samfélagslegrar ábyrgðar og að mati Smiths er þessi leið ein sú besta til að stuðla að æskilegum þjóðfélagsbreytingum en Michael E. Porter og
Mark R. Kramer hafa skrifað nokkuð um þetta efni á vegum
Harvard háskólans, þá helst í
Harvard Business Review undir titlinum „
Strategy and Society. The Link Between Competitive Advantage and Corporate Social Responsibility“.
Mikilvægi trausts
Porter og Kramer vísa í gamla en góða skilgreiningu
Gro Harlem Brundtland á því hvað samfélagsleg ábyrgð er: „Að mæta þörfum nútímans án þess að draga úr tækifærum komandi kynslóða til að mæta eigin þörfum“. Þessi skilgreining tekur á mörgum lögum samfélagslegrar ábyrgðar sem Porter og Kramer segja í meginatriðum ganga út frá fjórum viðmiðum, siðferði, sjálfbærni, tilverurétti fyrirtækis og orðspori.
Mikilvægi þess að ná að færa stefnuskrá í samfélagslegri ábyrgð frá því að reyna einungis að draga úr áhrifum fyrirtækis á umhverfi sitt, í víðu samhengi, yfir í að verða óaðskiljanlegur hluti af rekstri fyrirtækisins í þágu þjóðfélags, er sú leið sem Porter og Kramer telja að verði að fara á næstu árum.
Í hnotskurn má segja að Porter og Kramer telji að flest fyrirtæki í dag beiti einskonar viðbragðs samfélagslegri ábyrgð, það er þau reyni, eins og áður segir, að draga sem mest þau geti úr mögulegum skaða sem virðisaukandi rekstur fyrirtækis getur haft á umhverfi sitt. Þess í stað ættu fyrirtæki að vera stefnumótandi í sinni samfélagslegu ábyrgð með því að nýta virðisaukandi starfsemi fyrirtækisins samfélaginu til góða með samverkandi stefnumótun í huga.
Þannig er hægt að beita hæfileikum fyrirtækisins, reynslu og sérfræðikunnáttu, af samfélagslegri ábyrgð með manngæsku og virðingu fyrir umhverfinu í huga, til að styrkja fyrirtækið á þeim sviðum þar sem samkeppnin er hvað hörðust.
Lilly er eitt margra frumlyfjafyrirtækja sem er í þessu ferli í dag en lyfjaiðnaðurinn í heild sinni hefur farið í mikla naflaskoðun á undanförnum árum í kjölfar viðamikilla breytinga á starfsumhverfi þeirra. Helstu tekjustofnar lyfjafyrirtækja í dag eru vel þekkt lyf þar sem einkaleyfin eru annað hvort að renna út eða þegar runnin út. Í framtíðinni geta lyfjafyrirtæki því þurft að nálgast sínar rannsóknir á nýjum forsendum, mögulega á ofangreindum forsendum.