Á ráðstefnu í Gdansk á dögunum var kynnt skýrsla sem fjallaði um gildi heilbrigðisiðnaðarins þegar kemur að þátttöku og samvinnu við samtök um mat á heilbrigðisvísindum sem heita EUnetHTA. Samtökin safna saman upplýsingum um læknisfræðileg og efnahagsleg atriði tengd heilbrigðisvísindum með það að markmiði að stuðla að öruggri og skilvirkri heilbrigðisstefnu sem tekur mið af þörfum sjúklinga. Með þátttöku sjúklinga og starfsfólks í heilbrigðisgeiranum vonast samtökin til þess að auka skilvirkni í stefnumótun og ákvarðanatöku og stuðla að upplýstri kynningu á framförum innan heilbrigðisvísindanna.
Í skýrslunni komu fram upplýsingar um framlag heilbrigðisiðnaðarins til samtakanna, í tengslum við stefnumótun, aðferðafræði og þátttöku. Auk upplýsingaöflunar samtakanna um árabil víðsvegar um heiminn á sviði lyfjaþróunar og tölfræðigagna.
Öflugt skipulag sem stuðlar að gegnsæi og þátttöku almennings mun tryggja að HTA-heilbrigðismatið virki sem gagnlegt verkfæri til að stuðla að aðgengi upplýsinga sem stuðlað geta að nýsköpun og aukið aðgengi sjúklinga og aukið skilvirkni kerfisins.
Heilbrigðisiðnaðurinn hlakkar til að vinna með samtökunum til að tryggja að evrópsk samvinna við HTA-matið haldi áfram að verða jafn skilvirkt og hingað til. Þetta felur í sér að tryggja þarf að heilbrigðisiðnaðurinn taki virkan þátt í stefnumótandi umræðum á þessu sviði auk þess að vera virkur þátttakandi í framþróun og betrumbætum á samvinnu heilbrigðisgeirans við samtökin sem stuðlað geta að bættu heilbrigðismati í framtíðinni bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk innan heilbrigðiskerfisins.