LIF, systursamtök Frumtaka í Danmörku, segja framtíð lyfjaútflutnings þar í landi óstöðuga vegna erfiðara rannsóknaumhverfis. Allt stefnir í metútflutning í ár, en LIF segir hættu á að sú þróun snúist við ef rannsóknir verði ekki efldar.

Við sögðum frá því nýlega
hér á vefnum að LIF hefði áhyggjur af þeirri þróun að klínískum lyfjarannsóknum hafi fækkað verulega í Danmörku. Útflutningur á lyfjum er mikill þar í landi og er útflutningur lyfja um tíu prósent af heildarútflutningi landsins.
Verðmæti lyfjanna sem flutt voru út á fyrstu sex mánuðum ársins var rúmir 25 milljarðar danskra króna, eða rúmir 500 milljarðar íslenskra. Það er um 20% aukning frá sama tímabili í fyrra.
Ef fram heldur sem horfir fer verðmæti lyfjaútflutningsins yfir 50 milljarða DKR á þessu ári og það yrði met. LIF hefur þó áhyggjur af því að erfiðara rannsóknaumhverfi geri það að verkum að aftur dragi úr útflutningi.
Jørgen Clausen, yfirhagfræðingur LIF, segir að rannsóknir og þróun á nýjum lyfjum sé forsenda þess að ekki dragi úr útflutningi. „Lyfjarannsóknir eru líka forsenda þess að gæði lyfjarannsókna við danska háskóla og innan danska heilbrigðiskerfisins eru mikil. Því miður sýnir tölfræðin að fjöldi klínískra rannsókna hefur farið ört minnkandi undanfarin ár.“