EFPIA (European Federation of Pharmaceutical Industries and Associations) fagnar útgáfu skýrslu Evrópusambandsins “Stefna og aðgerðaplan til að bregðast við ógn sýklalyfjaþols” sem bendir á leiðir til að bregðast við þeim ógnum sem steðja að lýðheilsu manna vegan síaukins þols gegn sýklalyfjum. Slíkar aðferðir þarfnast djarfra aðgerða og úrræða. Þegar Svíar gegndu formennsku innan Evrópusambandsins árið 2009 höfðu þeir frumkvæðið að því að þessi mál voru sett á oddinn og áhersla lögð á að finna lausnir með samstilltu átaki allra aðildarríkja.
Í því sambandi sagði forseti EFPIA, Andrew Witty, að aukið sýklalyfjaþol væri verulegt áhyggjuefni og öll lönd heimsins þyrftu að taka þessa ógn verulega alvarlega. Þetta ástand væri mikil áskorun fyrir lyfjaiðnaðinn í heild sem hefði tekið höndum saman til að leitast við að finna lausnir á þessum vanda. Hann benti jafnframt á að markmið samtakanna væri að vinna náið með hagsmunaaðilum að því að finna nýjar leiðir til að stuðla að því að niðurstöður skýrslunnar veittu mönnum hvatningu til frekari rannsókna sem gætu vonandi stuðlað að því að árangursrík sýklalyf verði til taks þegar þeirra yrði þörf.
IMI (Innovative Medicine Initiative) eru samtök sem voru stofnuð af EFPIA og Evrópunefndinni sem hafa það meginmarkmið að stuðla að framförum í lyfjaþróun sem vonandi skilar sér í betri og öruggari lyfjum. Samtökin undirbúa nú aðgerðaáætlun sem er ætlað að flýta fyrir uppgötvun og þróun nýstárlegra sýklalyfja til að meðhöndla alvarlegustu tilfellin.
Af því tilefni sagði Richard Bergström, framkvæmdastjóri EFPIA, að þessi aðgerðaáætlun yrði að stuðla að þátttöku jafnt smárra sem stórra lyfjaframleiðenda og í raun alls vísindasamfélagsins sem fæst við rannsóknir á sýklalyfjum. Þessi sameiginlegi vettvangur myndi einnig stuðla að aukinni skilvirkni auk þess sem lyfjafyrirtækin gætu deilt reynslu sinni í tengslum við rannsóknir og þróun og borið saman bækur sínar um hvernig fyrri lyf hefðu reynst. Með þessari aðgerðaáætlun vonast EFPIA til þess að nýjar aðferðir verði þróaðar og þær komi fram í dagsljósið. Eins og staðan sé í dag sé vandamálið ekki bara skortur á nýjum sýklalyfjum heldur einnig vöntun á nýbreytni og nýjungum í þeim sem nú þegar eru framleidd.