Frumtök á twitter

Skýrsla Ríkisendurskoðunar: Lágt lyfjaverð á litlum markaði

Frumtök fagna nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um þróun lyfjakostnaðar 2008-2010 en í henni kemur fram að þrátt fyrir smáan markað hafi náðst mikill árangur í lækkun lyfjaverðs. Um nokkurt skeið hafa Frumtök ítrekað bent á góðan árangur í lyfjamálum á Íslandi sem nú er staðfestur með skýrslu Ríkisendurskoðunar. Í skýrslunni kemur fram að „verð á þeim lyfjum sem seld eru hér á landi sé nú sambærilegt verði sömu lyfja á hinum Norðurlöndunum“. Þetta hafa Frumtök ítrekað bent á þegar umræðan um lyfjaverð er á villigötum og má telja þetta mjög góðan árangur fyrir jafn lítinn markað og hér er.

Þó liggur fyrir að stjórnvöld hafa með ákvörðunum sínum þrýst lyfjaverði í mörgum tilvikum niður á lægsta verð á Norðurlöndum, á sama tíma og gjaldtaka fer vaxandi. Hefur þetta orðið til þess að lyf hafa verið tekin af markaði og blikur eru á lofti með aðgengi að nýjum lyfjum vegna þessa. Mikilvægt er að feta meðalveginn í þessum málum og muna að skertur aðgangur að lyfjum skerðir þá þjónustu sem heilbrigðiskerfið getur veitt.

<<Til baka Bookmark and Share

Af hverju lyf?

Lyf geta gerbreytt lífi fólks sem glímir við erfið veikindi. Fólk getur náð stjórninni af sjúkdómnum með réttum lyfjum.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.