Frumtök á twitter

Svíar telja ekki réttlætanlegt að taka greiðsluþátttöku af þunglyndislyfjum

Í tilefni af niðurfellingu heilbrigðisráðherra á greiðsluþátttöku fjölmargra þunglyndislyfja vilja Frumtök ítreka andstöðu sína við grunnfyrirkomulag breytinganna. Frumtök benda á að í Svíþjóð var greiðsluþátttaka þunglyndislyfja endurskoðuð árið 2008. Í kjölfar heilsuhagfræðilegrar úttektar var niðurstaðan sú að ekki þætti réttlætanlegt að gera breytingar á greiðsluþátttöku þessara lyfja. Samkvæmt núverandi kerfi eru því nær undantekningarlaust öll þunglyndislyf niðurgreidd í Svíþjóð. Þar er byrjað á ódýrustu meðferð og allir nýir sjúklingar byrja á nýja kerfinu. Þeir sjúklingar sem þegar eru á meðferð halda henni áfram og eru endurmetnir þegar þeir koma næst til læknis. Þessi leið hefur gefið góða raun.

 

Óvissa um raunverulegan sparnað, á kostnað þunglyndissjúklinga

 

Leið stjórnvalda á Íslandi er hins vegar að afnema greiðsluþátttöku þunglyndislyfja án þess að litið sé til verkunar, aukaverkana og áhrifa á lífsgæði. Það er nauðsynlegt að taka tillit til þessara þátta til að meta gagnsemi lyfja á móti kostnaði. Frumtök og Rannsóknarstofnun um lyfjamál Háskóla Íslands hafa hvatt til þess að slíkt mat fari fram en ekki hefur verið brugðist við því. Frumtök telja því verulega óvissu ríkja um raunverulegan sparnað, eða kostnað, af aðgerðum heilbrigðisráðuneytisins þegar fram í sækir. Ennfremur er ekki gert ráð fyrir skammtastærðum í útreikningum á sparnaði og því ekki sjálfgefið að ódýrasta pillan sé ódýrasta leiðin.

Það má heldur ekki líta fram hjá því að breytingarnar hafa í för með sér röskun á meðferð hjá þúsundum þunglyndissjúklinga og verulega skerðingu á gæðum þjónustu. Þegar hefur verið vegið að þessum hópi fólks með sparnaðaraðgerðum, t.d. lokun geðdeilda svo eitthvað sé nefnt. Frumtök telja að nú sé nóg komið. Það hljóti að vera hægt að leita annarra leiða og Frumtök ítreka vilja sinn til viðræðna og samstarfs við heilbrigðisyfirvöld til að reyna að finna leiðir til sparnaðar til lengri tíma, án þess að það bitni stórlega á gæðum heilbrigðisþjónustu gagnvart þeim sem minna mega sín í okkar samfélagi.

Skýrslu sænsku lyfjagreiðslunefndarinnar er að finna hér.

<<Til baka Bookmark and Share

Af hverju lyf?

Lyf geta gerbreytt lífi fólks sem glímir við erfið veikindi. Fólk getur náð stjórninni af sjúkdómnum með réttum lyfjum.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.