Frumtök á twitter

Umræðan um lyf sem skipta sköpum

Á síðustu öld var lyfjaþróun mjög hröð enda hefur líklega aldrei náðst meiri árangur í velferð en einmitt á þeirri öld. Landslagið er örlítið breytt þar sem sífellt erfiðara gengur að finna ný lyf og rannsóknarkostnaður hefur því hækkað gríðarlega, svo mikið að lyfjarannsóknir eru nánast aðeins á færi stórfyrirtækja.

Það er flestum ljóst að lyf skipta sköpum fyrir velferð okkar. Umræðan um lyf og lyfjafyrirtæki er þó stundum á allt öðrum nótum, eins og engin árangur hafi náðst eða að lyf séu ónauðsynlegir plástrar.

Umræðan um lyfjaverð er hluti af neikvæðri umræðu um lyf á Íslandi. Verð einhvers sem er nauðsynlegt og skiptir sköpum skiptir augljóslega miklu máli. Staðreyndin er hinsvegar sú að lyfjaverð á Íslandi er ákvarðað af hinu opinbera (lyfjagreiðslunefnd) og er verð lyfja á Íslandi miðast við meðaltal lyfjaverðs á Norðurlöndunum. Lyfjafyrirtækin verða fyrir barðinu á umfjöllun um lyfjaverð þrátt fyrir að fyrirtækin ráði þar litlu um.

Þá hefur umræðan um misnotkun á lyfjum verið fyrirferðarmikil það sem af er þessu ári. Lyf eru í eðli sínu þannig að þau nýta virk efni til að hafa áhrif á líkamann til hins betra. Vegna þessa getur virka efnið haft önnur áhrif á þá sem ekki þurfa á lyfinu að halda en þá sem þurfa lyf samkvæmt læknisráði. Þá eru vægar aukaverkanir einnig mögulegar þegar lyf eru tekin og hvoru tveggja kemur iðulega fyrir í samtölum fólks á milli.

Hið sérkennilega er að margir eru farnir að taka lyfjum sem sjálfsögðum hlut. Lítið sem ekkert er fjallað um þau góðu þjóðfélagslegu áhrif sem lyf hafa. Lítið er fjallað um krabbameinslyf sem hafa breytt dauðadómi í viðráðanlegan sjúkdóm. Lítið er fjallað um að eyðni er ekki lengur svartnættið eitt. Lítið er fjallað um áhrifin af því að fólk geti verið á vinnumarkaði í stað þess að liggja veikt. En ekkert af þessu er gefið.

Það er skoðun Frumtaka að opna þurfi umræðuna um lyf og dýpka svo leiða megi fyrir sjónir fólks hve lyf eru þjóðhagslega sem félagslega mikilvæg.

Lyf skipta nefnilega sköpum og það er hætt við því að það gleymist ef aðeins er einblínt á það sem laga má en ekki það sem vel er gert.

<<Til baka Bookmark and Share

Hvaða máli skipta lyf?

Rétt lyf eru jafn mikilvæg og rétt sjúkdómsgreining. Lyf geta gert fólki að yfirstíga sjúkdóma sem annars væru óyfirstíganlegir.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.