Út er kominn bæklingur með íslenskri útgáfu Frumtaka af reglum EFPIA (European Federation of Pharmaceutical Industries and Associations) er lúta að samskiptum og kynningu lyfseðilsskyldra lyfja fyrir fagfólki í heilbrigðisstétt. Reglurnar tóku fyrst gildi hér á landi 1. júlí 2008, og nú í endurbættri útgáfu sem gildir frá 1. janúar 2012. Reglurnar taka einkum á málum er varða upplýsingagjöf lyfjaframleiðenda og nauðsyn þess að veittar séu nákvæmar, óhlutdrægar og réttar upplýsingar. Þær ná m.a. yfir kynningar á lyfseðilsskyldum lyfjum fyrir fagfólk í heilbrigðisstétt og samskipti lyfjaframleiðenda við heilbrigðisstarfsfólk.
Tilgangur reglnanna er ekki að setja hömlur á lyfjakynningar eða samskipti við fagfólk í heilbrigðisstétt er skaðað gæti heilbrigða samkeppni, heldur einungis að tryggja áreiðanleika og hlutleysi lyfjaframleiðenda í samskiptum og kynningu í samræmi við lög og reglugerðir í landinu. Reglurnar ná til aðildarfyrirtækja EFPIA, dótturfyrirtækja þeirra og annarra fyrirtækja sem tengjast fyrrnefndum fyrirtækjum hafi þau samþykkt reglurnar.
Um þetta var fjallað í þættinum Samfélagið í nærmynd sem var á dagskrá Ríkisútvarpsins þann 23. janúar sl. þar sem tekið var viðtal við Jakob Fal Garðarsson, framkvæmdastjóra Frumtaka sem eru samtök framleiðenda frumlyfja. Í máli hans kom m.a. fram að núgildandi lyfjalög leggja línurnar því miklir hagsmunir eru á lyfjamarkaðnum og því mikilvægt að kynningar á lyfjum fari fram á gegnsæjan hátt þar sem um óhefðbundna verslunarvöru ræðir. Auk þess gilda mjög strangar reglur um samskipti lækna við lyfjaframleiðendur enda mikilvægar fyrir báða aðila þótt samskiptin hafi breyst í grundvallaratriðum á undanförnum árum á þá leið að reglurnar hafa verið í auknum mæli verið gerðar almennar og gegnsæjar.
Auk þess benti Jakob Falur á að þessi samskipti væru ekki síst mikilvæg fyrir sjúklinga þar sem þeir þurfa að geta treyst því að læknar hafi tryggan aðgang að nýjustu upplýsingum um lyf hverju sinni. Eins og staðan er núna ber læknum skylda til að ávísa ódýrasta lyfinu við upphaf meðferðar í mörgum sjúkdómaflokkum, enda er það í takt við eðlilega stefnu að fara sem best með fjármuni í heilbrigðiskerfinu. Með því ætti um að leið að gefast frekara svigrúm til að fjárfesta í og tryggja aðgengi að nýjum lyfjum sjúklingum til hagsbóta.
Hér getur þú nálgast reglurnar um samskipti frumlyfjaframleiðenda við heilbrigðisstarfsfólk og sjúklingasamtök.