Á vef EFPIA sem eru Evrópusamtök samtaka frumlyfjaframleiðenda, er ný frétt þar sem þeirri spurningu er velt upp hvort verð á samheitalyfjum í Evrópu sé of hátt. Fréttin er sérlega áhugaverð í ljósi umfjöllunar síðustu daga á Íslandi þar sem mikil umræða hefur farið af stað um verð samheitalyfja á Íslandi samanborið við nágrannalöndin. Verð lyfja á Íslandi er ákvarðað af Lyfjagreiðslunefnd sem vinnur út frá þeirri meginreglu að lyfjaverð á Íslandi eigi að vera sem næst meðaltalsverði á Norðurlöndunum.
Hvað samheitalyf varðar virðist það ekki vera raunin að verðið á Íslandi sé í kringum meðaltal Norðurlandanna og hefur meðal annars verið reynt að skýra það með smæð markaðarins. Smæðin hefur hinsvegar lítið að segja hvað verð á frumlyfjum varðar.
Fyrir frumlyfjaframleiðendur er svarið við spurningunni um hvort samheitalyf séu of dýr í Evrópu vafalaust jákvætt þar sem kostnaður við rannsóknir fellur til hjá frumlyfjaframleiðendunum og einkaleyfin sem fást hafa afar takmarkaðan gildistíma. Þegar einkaleyfi rennur út geta samheitalyfjaframleiðendur framleitt lyfin með margfalt minni tilkostnaði á grundvelli rannsókna þeirra sem frumlyfjaframleiðendurnir hafa þegar kostað.
En það er fleira sem kemur til skoðunar í fréttinni á vef EFPIA. Þar er sérstaklega minnst á það að núverandi regluverk Evrópuríkjanna í lyfjamálum tryggi ekki að sá sparnaður sem verði til við framleiðslu samheitalyfja skili sér til sjúklinga eða heilbrigðiskerfa sem greiða fyrir lyfin og að svo virðist vera sem svigrúm sé til frekari lækkana á samheitalyfjum í Evrópu.
Aukin samkeppni frá Indlandi
Hvað Ísland varðar eru frumlyf almennt fremur ódýr samanborið við Norðurlöndin. Meðaltal lyfjakörfu landsins gæti hinsvegar verið hærra en nauðsynlegt er þar sem samheitalyfin eru dýrari á Íslandi en á Norðurlöndunum ef marka má fréttir undanfarna daga sem birst hafa m.a. á RÚV og á visir.is. Samheitalyfin geta því híft meðalverð lyfjakörfunnar upp.

Mikill þrýstingur er hinsvegar að skapast á evrópska samheitalyfjaframleiðendur frá Indlandi þar sem framleiðslukostnaður er mjög lágur og einkaleyfavernd ekki eins sterk og í Evrópu. Búist er við því að sá þrýstingur muni því verða til lækkunar á verði samheitalyfja í Evrópu á næstu árum.
Það er athyglisvert að þrátt fyrir að samheitalyf séu ódýrari en frumlyf, eins og eðlilegt má teljast þar sem rannsóknarkostnaðurinn fellur á framleiðanda frumlyfsins, sé samt talið að þau séu of dýr í Evrópu miðað við frumlyf. Þetta er enn áhugaverðara í ljósi umræðunnar á Íslandi en nýverið hefur heilbrigðisráðuneytið farið út í viðamiklar breytingar þar sem aðgangur sjúklinga að nauðsynlegum frumlyfjum hefur verið takmarkaður. Ódýr samheitalyf hafa verið sett í fyrsta sætið á kostnað nauðsynlegra frumlyfja.