
Umræðan um viðkvæm samskipti lækna og lyfjafyrirtækja kemur reglulega upp. Mikilvægt er að hún sé bæði opinská og hreinskiptin. Síðast í þessari viku voru samskiptin til umræðu í Morgunblaðinu. Þar sagði Geir Gunnlaugsson, landlæknir, meðal annars að samskipti lækna og lyfjafyrirtækja séu mjög viðkvæm og læknar þurfi stöðugt að vera á varðbergi vegna hugsanlegra hagsmunaárekstra.
„Því má heldur ekki gleyma að læknar þurfa að vera vel upplýstir um þá valkosti sem eru í boði hverju sinni hvað varðar val á lyfi,“ segir Geir.
Frumtök taka heilshugar undir þessi orð landlæknis og eru sammála því að samskipti lækna og lyfjafyrirtækja séu viðkvæm og vandmeðfarin.
Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, segist í Morgunblaðinu í dag, föstudag, ekki hafa þurft að taka á málum þar sem samskipti lækna og lyfjafyrirtækja hafi verið óeðlileg. „En auðvitað hefur margt breyst frá því sem áður var og það er ástæða fyrir því að settar voru reglur um samskipti lækna og lyfjafyrirtækja.“ Frumtök taka einnig undir með Birnu og vekja athygli á því að aðildarfyrirtæki Frumtaka fylgja öll siðareglum sem eiga uppruna sinn hjá EFPIA, evrópusamtökum frumlyfjaframleiðenda.
Þessar siðareglur eru aðgengilegar á vef Frumtaka og taka þær á samskiptum lyfjaframleiðenda og samtökum sjúklinga annars vegar, og samskiptum og kynningu lyfseðilsskyldra lyfja fyrir fagfólk í heilbrigðisstétt hins vegar. Langtímahagsmunir lyfjafyrirtækja eru gott orðspor og því er mikilvægt að slíkar reglur séu til og hafðar í hávegum.
Eins og kom fram hjá Katli B. Magnússyni, viðskiptasiðfræðingi, á Læknadögum snemma á þessu ári, þá eru samskipti lækna og lyfjafyrirtækja sérstaklega vandmeðfarin vegna umboðsvandans sem skapast í virðiskeðju lyfjanna. Hann skapast þegar einn hópur fer með umboð fyrir aðra, án þess að hafa sömu hvata eða hagsmuni og þeir – í þessu tilviki læknar annars vegar og sjúklingar hins vegar. Reynt er að taka á þessum vanda með siðareglum EFPIA sem hafa orðið fyrirmynd annarra.
Nýlega fóru fram hringborðsumræður á vegum GlaxoSmithKline um hvernig auka megi traust á niðurstöðum lyfjarannsókna. Þar kom fram að markvisst hefur verið unnið að því hjá lyfjafyrirtækjum að auka gagnsæi og bæta aðferðir við að koma niðurstöðum lyfjarannsókna á framfæri.
Sjá nánar hér.
Það er afar mikilvægt að umræða sé um þessi mál og að hún sé á faglegum nótum.