
Lyfjafyrirtækið
Lilly heldur úti virkri
bloggsíðu þar sem oft koma fram áhugaverðar greinar eða innlegg í hina eilífu umræðu um lyf, þróun þeirra og áhrif á nútímasamfélag.
Í nýlegu og áhugaverðu bloggi
Greg Kueterman hjá Lilly kemur fram að þó auðvitað séu áhrif frá lyfjaiðnaði mikil hvað bætt lífsgæði varðar þá séu áhrifin frá starfssemi lyfjafyrirtækjanna á efnahagslíf oft vanmetin. Þannig hafi samtök lyfjaiðnaðarins í Bandaríkjunum,
PhRMA, birt skýrslu sem sýni fram á að störf í lyfjaiðnaði og afleidd störf séu fyrirferðarmeiri í hagkerfinu en margir halda.
Í íslensku samhengi er ekki síður mikilvægt að gera sér grein fyrir þessu þegar háværar kröfur um niðurskurð eiga sér stað víða í þjóðfélaginu. Niðurskurður á sér ekki síst stað í heilbrigðiskerfinu. Á sama tíma gerast þær raddir æ háværari sem vilja snúa vörn í sókn með því að leggja aukna áherslu á menntun, rannsóknir og fyrirbyggjandi aðgerðir.
Lyfjarannsóknir eru afar kostnaðarsamar en með stuðningi erlendra fyrirtækja geta þær skapað áhugavert sóknarfæri. Lyfjarannsóknir taka langan tíma og aðeins fáar rannsóknir skila nothæfum lyfjum. Það getur því skipt miklu máli að umhverfi til lyfjarannsókna geti stuðlað að aukinni hagkvæmni, til dæmis með nauðsynlegum stöðugleika.
Rannsóknir eru stundaðar við allmörg lyfjafyrirtæki á Íslandi og þegar litið er til þess umhverfis sem Ísland býr við í dag má gera sér í hugarlund að aðstæður hér á landi séu ákjósanlegar fyrir lyfjarannsóknir, jafnvel ákjósanlegri nú en undanfarin ár.
Vísindalegur og faglegur metnaður er þegar mikill, framleiðsluaðstaða, menntunarstig og þekking á iðnaðinum er með besta móti. Við núverandi aðstæður er nauðsynlegt að styðja við íslenskt hugvit og verðmætasköpun í innlendri framleiðslu. Frumkvöðlastarfið getur verið valkostur fjölda sérmenntaðra starfsmanna sem annars gefa nágrannalöndunum hýrt auga. Þetta á við um lyfjaiðnaðinn jafnt sem aðra atvinnuskapandi starfssemi.
Rannsóknir og þróun rjúfa vítahring
Fyrir um tíu árum síðan var talið að ríflega tvö þúsund manns störfuðu í lyfjageiranum á Íslandi. Af þessum fjölda var stór hluti starfandi í grunnrannsóknum og þróun.
Með aukinni þátttöku í klínískum lyfjarannsóknum og stuðningi við lyfjageirann í landinu væru Íslendingar virkir þáttakendur í mikilvægri þróun til lækninga, samtímis yrðu ný störf sköpuð. Með þetta í huga ætti það jafnframt að vera viðmiðið að lyf sem þáttur í útgjöldum heilbrigðiskerfisins eru fjárfesting, ekki ósvipað og tæknibúnaður.
Hvort sem frekari samdráttur eða niðurskurður verður ofan á þá þarf að girða fyrir það að niðurskurður eigi sér stað í þróun og rannsóknum. Ef slíkt yrði niðurstaðan eru flestar bjargir bannaðar og vítahringur hnignunar á næsta leiti. Í raun má jafnvel segja að sú vinna sem unnin er við rannsóknir og þróun geti fjölnýtt fjármagnið. Vinnan rífur vítahring efnahagslegrar hnignunar og færir lausnir sem taka á öðrum vanda um leið og hún virkar sem hagkvæm fjárfesting í heilbrigðiskerfinu.
Rannsóknir og þróun geta verið mjög mikilvæg vítamínsprauta fyrir hagkerfi í vandræðum og á það sérstaklega við um rannsóknir og þróun sem byggja á háu menntunar- og þekkingarstigi eins og lyfjarannsóknir.
Áhættusækni yfirvalda
Um miðjan maí mánuð skilaði vinnuhópur á vegum velferðarráðherra tillögum sínum um leiðir til að stemma stigu við vaxandi útgjöldum vegna S-merktra lyfja en það eru lyf sem samkvæmt lyfjalögum er heimilt að takmarka við notkun á sjúkrahúsum.
Niðurstaða vinnuhópsins var sú að engin einstök aðgerð myndi skila betri árangri en sú breyting sem falin er í frumvarpi fjármálaráðherra til breytinga á lögum um opinber innkaup. Vinnuhópurinn telur að með þeim breytingum sem þar eru fyrirhugaðar opnist möguleiki á sameiginlegum lyfjaútboðum Landspítala með sambærilegum stofnunum á Norðurlöndunum.
Frumvarpið, sem nú er orðið að lögum, vakti mikla furðu hinna ýmsu hagsmunasamtaka atvinnulífsins því verði lögunum beitt í einhverjum mæli munu þau beinlínis vinna gegn lyfjageiranum á Íslandi án þess að koma til leiðar þeim sparnaði sem stefnt er á.
Lögin í heild sinni má nálgast
hér.
Umsagnir hagsmunaaðila, þar á meðal Frumtaka, má nálgast
hér.