Frumtök á twitter

Vilja efla rannsóknir

Fréttablaðið var með ágæta umfjöllun um þá möguleika sem sannarlega eru til staðar þegar kemur að auknum rannsóknum á sviði lyfjafræðinnar. Þar kemur fram að þó dregið hafi mjög úr lyfjarannsóknum á Íslandi að undanförnu gæti orðið breyting á, þar sem Landspítali - háskólasjúkrahús hefur áform um að koma á samstarfi milli lyfjafyrirtækja og vísindamanna. Umfjöllun Fréttablaðsins fer hér á eftir í heild sinni:
 

Vonumst til að sjá fyrstu rannsóknirnar fyrir áramót

"Við vonumst til að sjá fyrstu rannsóknirnar við þessar nýju aðstæður fyrir áramót," segir Kristján Erlendsson, framkvæmdastjóri vísinda-, mennta- og gæðasviðs Landspítalans. Í undirbúningi er samstarf Landspítalans - háskólasjúkrahúss og lyfjafyrirtækja um lyfjarannsóknir en mjög hefur dregið úr þeim hérlendis að undanförnu.

"Þeim stöðugildum sem lyfjafyrirtækin hafa haft í rannsóknum hefur fækkað verulega og störfin eru nánast horfin," segir Hjörleifur Þórarinsson, framkvæmdastjóri lyfjafyrirtækisins GlaxoSmithKline. Undir þetta tekur Davíð Ingason, sölu- og markaðsstjóri AstraZeneca. "Við vorum að jafnaði með fjórar rannsóknir í gangi á hverjum tíma, en nú erum við með enga og þetta á við um fleiri fyrirtæki."

Inntur eftir ástæðum fyrir þessum sviptingum á lyfjamarkaði segir Davíð: "Heilbrigðisráðuneytið hefur verið að beina neyslu lyfja úr frumlyfjum yfir í samheitalyf á undanförnum mánuðum. Við höfum samt ekkert á móti því," útskýrir Davíð og heldur áfram: "Ríkið hefur þó verið að breyta kerfinu í þá átt að það er ekki nóg með að frumlyfinu sé skipt út fyrir samheitalyf heldur er frumlyfinu skipt út fyrir einhverja eftirlíkingu af skyldu lyfi. Þetta hafa þeir gert í nafni sparnaðar."

Að sögn Davíðs sjá erlendu frumlyfjafyrirtækin ekki ástæðu til þess að taka þátt í rannsóknum á markaði sem andsnúinn er nýrri lyfjum. "Af hverju að fjárfesta í markaði, ef við getum gert þetta annars staðar og móttökurnar eru betri?"

Hjörleifur tekur við og segir að lyfjafyrirtækin séu einnig undir gífurlegum þrýstingi erlendis frá um hagræðingu. "Fyrirtækin hafa verið að fækka þeim löndum þar sem þau gera þessar rannsóknir og færa þær yfir í færri og stærri rannsóknarsetur þar sem auðveldara er að gera slíkar rannsóknir," upplýsir hann og bætir við að Ísland eigi erfitt með að keppa við stórar þjóðir um lyfjarannsóknir. "Verið er að færa rannsóknir til landa þar sem kostnaðurinn er minni."

Kristján tekur undir með Hjörleifi að lyfjarannsóknum hafi fækkað í löndunum í kringum okkur. "Við erum að undirbúa að gera okkur betur í stakk búin til þess að taka þátt í rannsóknum og verða meira spennandi samstarfsaðili til að vinna á þessum vettvangi."

<<Til baka Bookmark and Share

Lyf eru nauðsynleg

Það eru forréttindi að geta læknað og líknað. Án þróunar frumlyfja staðnar framþróun heilbrigðismála. Lyf eru nauðsyn í nútíma samfélagi og einn mikilvægasti stólpi heilbrigðiskerfisins.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.