Frumtök á twitter

Witty leggur áherslu á samstarf

Eins og við sögðum frá fyrr í vikunni, kallaði Andrew Witty, forseti EFPIA, eftir nánara samstarfi stjórnvalda og lyfjafyrirtækja á aðalfundi samtakanna sem nú er nýlokið.

Hann kallaði eftir nýrri orðræðu um lyfjamál. Lyfjaiðnaðurinn þyrfti að hafa skilning á  sparnaðaraðgerðum stjórnvalda en að stjórnvöld þyrftu jafnframt að tryggja að slíkar aðgerðir hindruðu ekki þróun nýrra lyfja.

Ekki rétt leið valin í Grikklandi

 
Witty gagnrýndi einnig þá ákvörðun Novo Nordisk að hætta nýlega sölu á nokkrum insúlínlyfjum á grískum markaði eftir að þarlend stjórnvöld tilkynntu að lækka ætti verðin á lyfjunum.

„Slíkar aðgerðir stuðla ekki að úrlausnum á núverandi ágreiningsmálum,“ sagði Witty, og bætti við að „við verðum að finna leiðir til að halda viðræðum áfram og til að halda þeim málefnalegum. Það að ganga frá samningaborðinu er ekki rétta skrefið að mínu mati.“

Novo Nordisk dró ákvörðun sína til baka eftir að grísk stjórnvöld hækkuðu verð umræddra lyfja upp að ásættanlegu marki að mati lyfjaframleiðandans.

Lyfjaverð innan Evrópusambandsins hefur lækkað um 3% árlega undanfarin ár vegna aðgerða stjórnvalda til að draga úr heilbrigðiskostnaði. Witty sagði lækkunina verða enn meiri árið 2010.


http://www.firstwordplus.com/Fws.do?articleid=04670A54D3164C3CAE62196428586C1F

<<Til baka Bookmark and Share

Lyf eru nauðsynleg

Það eru forréttindi að geta læknað og líknað. Án þróunar frumlyfja staðnar framþróun heilbrigðismála. Lyf eru nauðsyn í nútíma samfélagi og einn mikilvægasti stólpi heilbrigðiskerfisins.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.