
Lyfjafyrirtækið
Eli Lilly hefur kallað eftir því að yfirvöld á Vesturlöndum beiti sér í auknu mæli í baráttunni við glæpasamtök sem selja fölsuð lyf. Vandamálið fer sífellt vaxandi með auðveldu aðgengi að verslunum á netinu og hnitmiðaðri markaðssetningu óprúttinna aðila með hjálp vöktunarkerfa á veraldarvefnum.
Með lítilli fyrirhöfn má finna vefsíður sem bjóða fölsuð lyf sem fólk kaupir í góðri trú. Eins og staðan er í dag þá snýst barátta yfirvalda fyrst og fremst um það að loka vefsíðum sem selja fölsuð lyf en nýjar vefsíður spretta upp jafnharðan og þeim er lokað.
Ef árangur á að nást er nauðsynlegt að brjóta niður dreifingarkerfi glæpagengjanna. Þannig verður að rekja uppruna framleiðslunnar og koma í veg fyrir að fölsuðum og lífshættulegum lyfjum sé dreift án mikillar fyrirhafnar.
Michael Russo sem fer með öryggismál hjá Eli Lilly segir að það skipti öllu máli að stöðva framboð falsaðra lyfja. Um slíkt magn og svo nákvæma umbúðafölsun er að ræða að ljóst er að þræðir glæpagengjanna liggja víða. Yfirvöld hafa því að mörgu leyti betri möguleika á að taka á þessum vanda en til dæmis eiturlyfjavandanum.
Nauðsynlegt er að vera á varðbergi gagnvart lyfjafölsunum.
Vandinn er vaxandi á Norðurlöndunum enda er eftir miklu að slægjast.