Frumtök á twitter

Fréttir


Bætt heilsa síðustu 200 árin

Samþykkt viljayfirlýsingar við sannprófanir á lyfjum

Að gefnu tilefni vegna samskipta lækna og lyfjafyrirtækja og umfjöllunar Spegilsins

Nauðsynlegt að vera alltaf á varðbergi gagnvart fölsuðum lyfjum

Ný stjórn og formaður stjórnar Frumtaka


Greinar


Lyfjaverð á Íslandi

Er lítill lyfjamarkaður á Íslandi ástæða lítils lyfjaframboðs?

Geðsjúkdómar eru dýrir: Grein eftir Sigurð Boga Sævarsson í Finnur.is

Ásættanleg áhætta: Grein eftir Bjarna Ólafsson hjá Viðskiptablaði Morgunblaðsins um bólusetningar

Bylting í meðferð geðsjúkra

Greinar

Lyfjaverð á Íslandi

Jakob Falur GarðarssonAðsend grein eftir Jakob Fal Garðarsson framkvæmdastjóra Frumtaka í Fréttablaðinu 27. desember 2011. Greinina má finna á visir.is.

Í síðasta mánuði kom út athyglisverð skýrsla Ríkisendurskoðunar, Þróun lyfjakostnaðar 2008-2010. Rétt er að rifja upp að árið 2005 gaf Ríkisendurskoðun út sambærilega skýrslu sem sýndi fram á að lyfjaverð á Íslandi var hærra en í helstu samanburðarlöndum okkar. Sú spurning sem Ríkisendurskoðun leggur til grundvallar í hinni nýju skýrslu er því áhugaverð og hlýtur að vekja forvitni almennings: er lyfjaverð á Íslandi svipað og á Norðurlöndunum?

Er lítill lyfjamarkaður á Íslandi ástæða lítils lyfjaframboðs?

Jakob Falur GarðarssonAðsend grein eftir Jakob Fal Garðarsson framkvæmdastjóra í Fréttablaðinu 21. desember 2011. Greinina má finna á visir.is.

Í síðasta mánuði kom út skýrsla Ríkisendurskoðunar, Þróun lyfjakostnaðar 2008-2010. Helsta niðurstaða hennar er sú að þrátt fyrir smæð íslenska lyfjamarkaðarins sé lyfjaverð hérlendis bæði sambærilegt við lyfjaverð í þeim löndum sem við berum okkur jafnan saman við og í mörgum tilfellum sé lyfjaverð meira að segja lægra en í þessum löndum.

Geðsjúkdómar eru dýrir: Grein eftir Sigurð Boga Sævarsson í Finnur.is

Frumtök hafa fengið góðfúslegt leyfi Morgunblaðsins til að endurbirta grein, sem upphaflega birtist í Finnur.is fimmtudaginn 3. febrúar 2011.

Í greininni vitnar Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður í erindi Kristinns Tómassonar hjá Vinnueftirliti ríkisins sem hann flutti á Læknadögum. Kristinn bendir á hve geðsjúkdómar eru samfélaginu kostnaðarsamir en mikill árangur hefur náðst í meðhöndlun geðsjúkdóma með hjálp lyfja. Kristinn tekur sem dæmi að fyrir árið 1940 hafi verið gert ráð fyrir að um 500 sjúkrarúm þyrfti vegna geðsjúkra. Í dag eru sjúkrarúmin hinsvegar vel innan við 150.

Greinin eftir Sigurð Boga birtist hér í heild sinni.

Ásættanleg áhætta: Grein eftir Bjarna Ólafsson hjá Viðskiptablaði Morgunblaðsins um bólusetningar

Frumtök hafa fengið góðfúslegt leyfi Bjarna Ólafssonar blaðamanns á Viðskiptablaði Morgunblaðsins til að endurbirta grein, sem upphaflega birtist í Viðskiptablaði Morgunblaðsins fimmtudaginn 13. janúar 2011.

Í greininni kemur Bjarni inn á mikilvægi bólusetningar og hræðsluáróður sem rekin er gegn bólusetningum víða um heim. Slíkur áróður getur haft mjög skaðleg áhrif á framkvæmd bólusetninga sem annars eru áhrifarík vörn gegn mannskæðum faröldrum.

Greinin er í heild sinni birt hér á eftir.

Bylting í meðferð geðsjúkra

Afar áhugaverð grein birtist í Skýjum, 5. tbl. 2010 eftir formann Geðlæknafélags Íslands, Kristinn Tómasson en þar fjallar hann um þær gríðarlegu framfarir sem orðið hafa í meðferð geðsjúkdóma.

Frumtökum var góðfúslega veitt leyfi til að birta greinina sem fer hér á eftir.

Lyfjakostnaður eða lyfjafjárfesting?

Kostnaður við heilbrigðisþjónustu er mikill, en ávinningurinn enn meiri. Nú þegar boðaður er niðurskurður um allt land á þessu viðkvæma sviði rís fólk upp og mótmælir. Það vill halda þjónustunni í heimabyggð og virðist sem gjá sé á milli stjórnvalda sem taki ákvarðanir út frá Excel skjölum og fólksins sem láti tilfinningarnar og hag sinna nánustu ráða. Millivegurinn virðist vandfundinn.

Í ljósi þessa er nýtt viðtal Frumtaka við Bjarna Sigurðsson, framkvæmdastjóra Lundbeck á Íslandi, áhugavert. Bjarni segir meðal annars að umræða um lyf hafi verið frekar einhliða og að skoða þurfi líka kostnaðinn við að bjóða ekki bestu mögulegu lyfjameðferð. Þunglyndislyfin séu gott dæmi.

Embættismaðurinn

Lyfjafyrirtækin og vísindamenn þeirra rannsaka dag hvern og þróa leiðir til þess að lækna eða veita betri meðferð við sjúkdómum. Þar má nefna krabbamein, hjartveiki, HIV og alnæmi, Alzheimers, Parkinsons, liðagigt, beinþynningu, lungnasýkingar, astma og fjölda annarra krankleika. Í dag er líklega unnið að rannsóknum og þróun á yfir 700 nýjum lyfjum og bóluefnum er kunna að gagnast á öllum sviðum lækninga. Saga 20. aldarinnar ber glæsilegt vitni um árangur á sviði lyfjaþróunar, sem sannarlega hefur aukið lífsgæði og lengt líf almennings. Í raun er með ólíkindum hve hratt meðalaldur, t.d. hér á landi og í Evrópu, hefur hækkað. Sú staðreynd er ekki síst tilkomin vegna framfara á sviði lækninga og heilbrigðisþjónustu og þar skipta framfarir á sviði lyfjaþróunar sköpum.

Holskefla

Jóhannes M. Gunnarsson, framkvæmdastjóri lækninga við LSH, líkti fyrir nokkru tilkomu nýrra lyfja við holskeflu, í samtali við Morgunblaðið. Þetta orðalag er óvenjulegt og má skilja þannig að eitthvað slæmt sé að gerast, eitthvað neikvætt og þá væntanlega vegna þess hve dýr hin nýju lyf séu. Jóhannes viðurkennir jú að vissulega geri nýju lyfin meira og betra gagn en þau sem fyrir eru og auki verulega lífsgæði. Ennfremur viðurkennir hann að sum lyfin geti jafnvel læknað alvarlega sjúkdóma. En það er umhugsunar vert að í augum framkvæmdastjórans skuli tilkoma nýrra lyfja fyrst og fremst birtast sem holskefla.

Ögmundur í Undralandi

Eftirfarandi grein birtist í Morgunblaðinu, fimmtudaginn 14. desember s.l.:
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB og þingflokksformaður Vinstri grænna, vill sem stjórnmálamaður láta taka sig alvarlega. En þegar raunveruleikinn er annar en hinn pólitískt rétti málstaður, þá skiptir áróðurinn og málflutningurinn meira máli eða hvað? Ögmundur sagði í samtali við Fréttastofu Stöðvar tvö í tilefni af samþykkt Alþingis um lækkun virðisaukaskatts, m.a. á geisladiska og gosdrykki, að skoða mætti lækkun virðisaukaskatts á lyf, en að umræða síðustu mánaða hafi leitt í ljós að hátt verðlag á lyfjum er fyrst og fremst til komið vegna fákeppni [...] og mikillar álagningar þeirra sem annast sölu og dreifingu á lyfjum

Af hverju kosta lyf ekki meira?

Bjarni Bærings, lyfjafræðingur hjá Medis ehf., skrifaði í nýútkomið Tímarit um lyfjafræði eftirfarandi grein, þar sem hann veltir fyrir sér spurningunni hvers vegna lyf kosti ekki meira en raun ber vitni. Bjarni veitti góðfúslega leyfi fyrir birtingu greinarinnar hér:

Í næstum hverri viku fjalla fjölmiðlar um himinhátt lyfjaverð á Íslandi. Ýmist liggja á bakvið fréttirnar vísindalegar samanburðarrannsóknir fréttahauka á lyfjaverði Norðurlanda eða tilvísanir í háfleyg orð stjórnmálamanna um ógöngur íslenska lyfjamarkaðarins - enda rata slíkir sleggjudómar gjarnan á forsíður og kreppa hnefa almúgans í kröfu sinni um lægra lyfjaverð.

Að gefnu Staksteinatilefni

Eftirfarandi grein birtist í Morgunblaðinu í dag, föstudag:
Staksteinar Morgunblaðsins spyrja undirritaðan nokkurra spurninga í gær, fimmtudag, sem er bæði ljúft og skylt að svara. Fyrst ber að taka undir með Staksteinum, að læknar hafa mikla hagsmuni af því gagnvart sjúklingum sínum að sýna fram á, að tengsl þeirra og lyfjafyrirtækjanna séu eðlileg. fyrirtækin hafa líka hagsmuni af því að tengsl þeirra við lækna séu eðlileg. Því eru í gildi reglur um samskipti lækna og lyfjafyrirtækja þar sem gert er ráð fyrir gagnsæi í samskiptunum. Undirritaður mætti formanni Læknafélagsins í Kastljósi nýverið og voru báðir sammála um að reglurnar mætti endurskoða, með það að markmiði að tryggja sem frekast er unnt , gagnsæi samskiptanna og traust almennings á þessum tengslum. Til áréttingar þá segir í samkiptareglunum mikilvægt að samstarf læknastéttarinnar og lyfjaiðnaðarins byggi á almennum grunnreglum sem tryggi gott siðferði, réttindi sjúklinga og að virtar séu væntingar samfélagsins, en tryggi um leið sjálfstæði beggja aðila í störfum þeirra. Jafnframt segir að [t]il að sjálfstæði og trúverðugleiki beggja sé tryggður þarf algert gegnsæi. Því verður að gera opinber öll tengsl sem leiða til eða gætu talist leiða til hagsmunaárekstra.

Læknar og lyfjafyrirtæki

Eftirfarandi grein birtist í Morgunblaðinu s.l. laugardag, þ.e. 2. desember:

Í leiðara Morgunblaðsins í gær, föstudag, er sagt orðið tímabært og nauðsynlegt að læknar skeri á öll hagsmunatengsl við lyfjafyrirtæki. Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja eru vandmeðfarin en sú leið sem Morgunblaðið leggur til er með öllu óraunsæ og sýnir í engu skilning á hversu mikilvægt er að eðlilegt samband sé á milli lyfjaframleiðenda og lækna. Lengi vel hafa verið í gildi samskiptareglur milli lækna og lyfjafyrirtækja en enn frekar var hnykkt á þessum samskiptareglum með samningi milli samtaka framleiðenda frumlyfja og Læknafélags Íslands sem undirritaður var 29. september s.l. Samningurinn og samskiptareglurnar eru aðgengilegar á vef Læknafélagsins og vef Frumtaka, www.frumtok.is

Geisladiskar og lyf

Eftirfarandi grein birtist í Morgunblaðinu í dag:
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu fjármálaráðherra að lækka virðiskaukaskatt af geisladiskum úr 24,5% í 7%. Allar skattalækkanir eru ánægjuefni og því ber að fagna þessari lækkun sem öðrum. Samtökum framleiðenda frumlyfja þykir þó skjóta nokkuð skökku við að í allri þeirri umræðu sem verið hefur að undanförnu um lækkun virðiskaukaskatt á hinar ýmsu nauðsynjar, skuli ekki vera rætt um lækkkun virðisaukaskatts á lyfjum. Lyf bera 24,5% virðisaukaskatt líkt og hver önnur munaðarvara. Lyf eru því væntanlega munaðarvara, en ekki gosdrykkir og geisladiskar. Í það minnsta hljóta það að vera skilaboð stjórnvalda til almennings.

Lyfjaverð og ráðherra

KASTLJÓS Sjónvarpsins hefur að undanförnu fjallað á vandaðan hátt um íslenska lyfjamarkaðinn. Glögglega hefur komið fram að verð frumlyfja er nú lægra hér á landi en í Danmörku á meðan dæmi, sem sýnd hafa verið í fjölmiðlum, eru um að verð samheitalyfja er hærra hér á landi en þar. Heilbrigðisráðherra hefur verið yfirlýsingaglaður, m.a. talað um "óþolandi hátt lyfjaverð" og ýmsu viljað breyta, nú síðast í viðtali við Eyrúnu Magnúsdóttur í lokaumfjöllun Kastljóss um þessi mál.

FRUMTÖK

Hjörleifur Þórarinsson, formaður Frumtaka, skrifaði grein í Morgunblaðið í kjölfar stofnfundar samtakanna, 26. október 2005.

Lyfjaverslun ríkisins árið 2006

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna, skrifaði eftirfarandi grein í Morgunblaðið 6. júlí s.l.um hugmyndir heilbrigðisyfirvalda um endurvakningu Lyfjaverslunar ríkisins.

Lyfjaverð á villigötum

Ásta Möller, alþingismaður, skrifaði athyglisverða grein í Morgunblaðið í dag undir fyrirsögninni Lyfjaverð á villigötum. Ásta hefur góðfúslega heimilað okkur að birta greinina hér á vefnum.

FRUMTÖK - ný samtök framleiðenda frumlyfja

Hjörleifur Þórarinsson, formaður Frumtaka, skrifaði eftirfarandi grein sem birtis nýverið í Mixtúru, tímariti lyfjafræðinema.

Hagur í lægra lyfjaverði

Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma, ritaði grein í Morgunblaðið þann 19. júní s.l. undir fyrirsögninni Hagur í lægra lyfjaverði.

Lyfjaverslun ríkisins

Morgunblaðið birti eftirfarandi grein eftir Jakob Fal Garðarsson þann 23. maí s.l.

Má upplýsa almenning um lyf?

Eftirfarandi grein eftir Jakob Fal Garðarsson birtist í Morgunblaðinu 11. maí s.l.

Hvernig tengjast Frumtök þér?

Traustur aðgangur að góðum lyfjum skiptir þig sköpum. Aðeins þannig er heilsufarslegt öryggi þitt tryggt.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.