ATH: Sírit um lyfjamál sem fer hér á eftir er texti sem tekinn var saman síðla árs 2004 og ber að hafa þá staðreynd í huga við lestur hans.
Sírit um lyfjamál
Allt sem þú vildir vita um lyf, en vissir ekki hvar þú ættir að leita!
Umræða um lyf, einkum um lyfjakostnað, hefur verið ofarlega á baugi í samfélaginu. Af því tilefni lét lyfjahópur FÍS upphaflega taka saman mikinn fróðleik um lyf og mál þeim tengd. Þessi fróðleikur er nefndur Sírit um lyfjamál: Heildarsýn á lyfjamarkaðinn á Íslandi og er að finna hér neðst á síðunni. Í Síritinu er m.a. umfjöllun um:
Samkomulag FÍS og Heilbrigðismálaráðuneytisins um lyfjaverð.
Lyfjaverð í heildsölu hefur farið lækkandi í kjölfar samkomulags lyfjaframleiðenda og innflytjenda og Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins. Í Sírítinu er sagt í stuttu máli frá samkomulaginu og hverju það er að skila. Áhrifa samkomulagsins er verulega farið að gæta til lækkunar á lyfjareikningi þjóðarinnar, og er nú svo komið að meðaltalsverð frumlyfja er nú lægra hér á landi en í Danmörku..
Hagkvæmni nýrra lyfja.
Í Síritinu má finna umfjöllun um að lyf íþyngi ekki heilbrigðiskerfinu. Þau eru þvert á móti mikilvægur hlekkur til að halda öðrum heilbrigðiskostnaði í skefjum vegna áhrifa þeirra til lækkunar á kostnaði vegna sjúkrahúsvistunar og minni sjúkdómsbyrði einstaklinga.
Aðgengi að lyfjum og mikilvægi áframhaldandi fjárfestinga í rannsóknum og þróun á þessu sviði.
Í Síritinu er umfjöllun um mikilvægi þess að tryggt sé gott aðgengi að lyfjum, þ.m.t. nýjum meðferðarúrræðum. Þrátt fyrir mikinn árangur í heilbrigðismálum eru enn ýmsar hættur á ferðum og víða vantar meðferðarúrræði. Mætti þar nefna ónæma bakteríu- og veirustofna og sjúkdómafaraldra eins og fuglaflensu og þörf er nýrra úrræða gegn sjúkdómum sem krabbameini, hjarta- æða- og lungnasjúkdómum.
Lyfjafalsanir.
Framleiðsla, dreifing og sala á fölsuðum lyfjum er vaxandi vandamál í Evrópu sem færist okkur nær. Í Síritinu er gerð grein fyrir vandanum og til hvaða úrræða hefur verið gripið á Vesturlöndum.
Virðisaukaskattur í lyf.
Lækka má verð á lyfjum verulega hér á landi með því að fella niður virðisaukaskatt á lyf, sem er 24.5%. Athyglisvert er, í þessu sambandi, að virðisauki á matvæli er 14% en á lyf 24.5%. Því verður ekki á móti mælt að lyf eru nauðsynjavara, ekki síður en matvæli.
En hvers vegna þetta sírit?
Sírit þetta er afrakstur vinnu sem hófst snemma árs 2003 innan vébanda lyfjahóps FÍS. Vinnuhópur skipaður starfsmönnum fyrirtækja innan lyfjahópsins hófst handa við að skilgreina þarfir fyrir upplýsingar um lyfjamál. Síritið er innlegg í umræðu um lyfjakostnað og lyfjanotkun hérlendis. Oft hefja fulltrúar stjórnvalda þessa umræðu og koma þá ýmsar upplýsingar upp á borðið. Ekki hefur þó alltaf verið greint frá þeim staðreyndum málsins sem miklu máli skipta í skoðanamyndun almennings og sérfræðinga á lyfjamálum. Hér er reynt að bæta til muna úr þessari brýnu upplýsingaþörf.
Hverjum er síritið ætlað?
Síritið um lyfjamál er ætlað öllum þeim sem vilja fræðast um innlend og alþjóðleg lyfjamál. Það er sett á internetið þar sem gott aðgengi er að því. Aðilar sem gætu haft not af þessum upplýsingum spanna allt frá almenningi, stjórnmálamönnum, heilbrigðisstarfsmönnum til fulltrúa ríkisvaldsins sem fara með fjármál og heilbrigðismál.
Hvernig á að nota síritið?
Síritið er öllum opið sem vilja fræðast um lyfjamál á Íslandi og alþjóðlega. Heimilt er að nota efni úr því, en þó ber að geta heimilda sem þessar upplýsingar eru byggðar á (sjá Heimildaskrá).
Útgáfur af síritinu
Upplýsingar þær sem hér eru eiga það til að úreldast og því er ætlunin að síritið verði uppfært reglulega. Þegar nýjar útgáfur þess koma verða þær settar hingað á heimasíðu Frumtaka og krækjur á síðuna frá aðildarfyrirtækjum Frumtaka ásamt öðrum aðilum sem áhuga hafa á efni síritsins.
Nánari upplýsingar veitir Jakob Falur Garðarsson í síma 588 8955 eða með því að senda tölvupóst til jfg@frumtok.is
Síritið í heild sinni er hér.